Allir krakkar með

Fyrir stuttu fengum við góða gesti í heimsókn til okkar frá Noregi, þá Kjartan Eide og Tommy Bottenvik. Þeir eru tveir af höfundum „Trivselsprogrammet“ eða Vinaliðaverkefnisins eins og við höfum kosið að kalla það hér í Skagafirði. Haldin voru leikjanámskeið í íþróttahúsinu á Sauðárkróki, bæði fyrir nemendur og starfsfólk grunnskólanna í Skagafirði. Á haustþingi KSNV, Kennarasambands Norðurlands vestra, kynntu þeir félagar verkefnið fyrir félagsmönnum ásamt því að bjóða upp á umræður og fyrirspurnir um verkefnið í málstofu.

Vinaliðaverkefnið er fyrst og fremst forvarnarverkefni sem hefur það yfirmarkmiði að nemendur hlakki til þess að koma í skólann sinn á hverjum degi. Ákveðinn fjöldi nemenda er valinn til þess að verða vinaliðar og munum við í fyrstu virkja nemendur í 4.- 6. bekk til þátttöku í verkefninu. Hlutverk vinaliða gengur út á það að skipuleggja leiki í frímínútum og drífa alla krakka með í leikina. Einnig er það hlutverk vinaliðanna að passa upp á yngstu nemendurna, að þeim líði vel í frímínútum og vera duglegir við að virkja nemendur sem eru einir. Vinaliðar eiga að hafa augun opin gagnvart óæskilegri framkomu eða hegðun nemenda og ber þeim að tilkynna um slíkt til skólaliða eða kennara.

Til þess að geta útskrifast sem vinaliði þurfa krakkarnir að fara í gegn um leikjanámskeið og fræðslu sem boðið er upp á með ákveðnu millibili. Þar læra nemendur fjölbreytta og skemmtilega leiki og fá kennslu í því koma þeim af stað í frímínútum. Rík áhersla er lögð á að vinaliðar séu hvetjandi og styðjandi við nemendur ásamt því að geta stjórnað leikjum í þann tíma sem frímínúturnar vara.

Vinaliðaverkefnið er norskt verkefni og er nú notað í um 800 grunnskólum í Noregi. Norðmenn tala gjarnan um verkefnið sem framhald eða góða viðbót við eineltisáætlun Olweusar  eða aðrar sambærilegar eineltisáætlanir.  Sem kunnugt er starfa allir grunnskólarnir þrír í Skagafirði eftir þeirri áætlun. Samkvæmt norskum rannsóknum fer 60% eineltis fram á skólalóðinni þrátt fyrir gæslu af hendi skólans. Samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið í þeim skólum í Noregi sem eru að nota Vinaliðaverkefnið kemur í ljós að um mun meiri aldursblöndun nemenda er að ræða en áður í frímínútum, stríðni og ágreiningur hefur minnkað til muna og mun færri nemendur eru einir í frímínútum en áður. Einnig segja um 90% kennara að verkefnið virki frábærlega eða vel í sínum skóla.

Árskóli, Grunnskólinn austan Vatna og Varmahlíðarskóli hafa nú tekið höndum saman og hafa ákveðið að innleiða Vinaliðaverkefnið í skólastarfið. Styrkur fékkst úr Sáttmálasjóðnum til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Umsjónarmaður verkefnisins hér verður Selma Barðdal, uppeldis- og sálfræðiráðgjafi hjá Fræðsluþjónustu Skagafjarðar. Hægt er að skoða heimasíðu verkefnisins í Noregi á eftirfarandi slóð http://www.trivselsleder.no/index.aspx.

/ Selma Barðdal Reynisdóttir

  

Fleiri fréttir