Allt að komast í lag hjá sjónvarpsáhorfendum

Vegna fréttar á www.feykir.is sem birtist í gær vilja Gagnaveita Skagafjarðar og Vodafone koma eftirfarandi á framfæri: Greiningu er nú lokið á ástæðu þess, að truflanir urðu á sjónvarpsþjónustu Vodafone á Sauðárkróki í vikunni.

Þegar rafmagnið fór af svæðinu misstu myndlyklar netsambandið, en slíkt samband er forsenda  þess að þjónustan virki sem skyldi.  Þegar rafmagn komst á að nýju reyndu allir myndlyklarnir að ná netsambandi á sama tímapunkti, sem olli yfirálagi á kerfi Gagnaveitu Skagafjarðar. Afleiðingin varð sú, að einungis sumir myndlyklar náðu sambandi en aðrir ekki.

Í fyrstu var ekki ljóst hvað olli sambandsleysinu hjá hluta viðskiptavina, en samstundis hófst vinna við að greina ástæður þess.  Fulltrúar Vodafone og Gagnaveitu Skagafjarðar reyndu einnig að finna tímabundna lausn, svo notendur kæmust í samband á meðan bilanagreining færi fram.  Sú lausn virkaði fyrir marga, en ekki alla notendur.

Í gærkvöldi lá svo fyrir, að yfirálag á tilteknum kerfislegum einingum olli vandamálinu og með lagfæringum á þeim var hægt að koma þjónustunni í samt lag. Í mörgum tilvikum komust myndlyklarnir sjálfkrafa í netsamband en sumir notendur þurftu að endurræsa myndlyklana til að koma sambandinu á.

Gagnaveita Skagafjarðar og Vodafone harma þau óþægindi sem notendur urðu fyrir.  Starfsmenn fyrirtækjanna vinna nú að uppfærslum sem eiga að tryggja, að vandamál af þessu tagi endurtaki sig ekki ef sams konar rafmagnstruflanir verða og í upphafi vikunnar.

Að gefnu tilefni vill Vodafone einnig benda á, að við aðstæður eins og þessar skapast mikið álag í þjónustuveri fyrirtækisins. Fyrir vikið verður biðin í þjónustuveri óhóflega löng, þegar margir viðskiptavinir hringja inn á sama tíma vegna vandamáls sem er tæknilega flókið. Vodafone biðst velvirðingar á biðinni og þakkar notendum fyrir þolinmæðina.

Fleiri fréttir