Almenningshlaup á gamlársdag
Á morgun, gamlársdag, verður almenningshlaup á Hvammstanga í boði fyrir þá sem vilja labba, skokka eða hlaupa í góðum félagsskap á síðasta degi ársins.
Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga kl. 13:00. Vegalengdirnar eru 3 km, 5 km, 10 km og 12 km.
Að loknu hlaupi gefst hlaupurum svo kostur á að ylja sér í pottum sundlaugarinnar.
Heimild: Norðanátt.is