Alsæla með Arniku!

Fröken Fabjúlöss man það sælla minninga þegar hún var lítil að sama hvað meinið var, ef amma var annars vegar þá var Arnika svarið!

Ekki hafa miklar pælingar verið lagðar frekar í þetta í gegnum árin, en svo var það um daginn að Fröken Fabjúlöss, sem dílar við þann hvimleiða sjúkdóm vefjagigt í gráma hvunndagsins, var nánast viðþolslaus af verkjum og frekar áhugasöm um lausn á þeim vanda. Var henni þá bent á Arniku olíuna frá Weleda og þar sem Frökenin hafði svosem engu að tapa, þá ákvað hún að slá til með semingi, með það á bak við eyrað að gamalt húsráð dyggði nú skammt í verkjafarganinu.

Það fyrsta sem fangaði athygli Frk Fab var lyktin af olíunni. Sterk lykt með birkikeim og ekki alveg uppáhaldsangan Fröken Fabjúlöss en samt ekki það slæm að hún gæti ekki hugsað sér að bera olíuna á sig. Ekki voru 10 mínútur liðnar þegar verkurinn var farinn að hjaðna og eftir korter var Frökenin verkjaminni en hún hafði verið í marga mánuði!

Þó svo að Frökenin gefi sig út fyrir að vera Fabjúlöss þá er fátt minna fabjúlöss en að þjást af verkjum heilu dagana, vikurnar eða jafnvel mánuðina í einu og oft upphefjast þá erfiðleikar við að vera í sambandi við sína innri dívu. Fröken Fabjúlöss hafa verið opnaðar nýjar dyr með Arniku olíunni góðu frá Weleda og finnst það ekki nema sanngjarnt að breiða út boðskapinn. Olían kannski lyktar ekki sem allra best svona við fyrstu notkun, en lyktin hjaðnar eftir nokkrar mínútur og er svona sirka eini ókosturinn við þessa annars dásamlegu guðsgjöf, og þegar áhrif olíunnar hafa sýnt sig breytist lyktin í ilm vellíðunar. Arnikuolían er góð bæði á liðverki, mar, vöðvabólgu og annarskonar verki. Fröken Fabjúlöss hefur meira að segja heyrt því hvíslað að Arnikuolía sé gyllta svarið við þurri húð og sé borin á óléttubumbu til að fyrirbyggja slit. Jafnvel þó svo að þessi olía sé seld sem nuddolía er hún svo mikið mikið meira!

Fröken Fabjúlöss er búin að bæta Arniku olíunni á listann yfir bráðnauðsynlegann staðalbúnað í lífinu og ráðleggur öllum að gera það sama!

Fleiri fréttir