Alvarleg líkamsárás á Hólum
Kona á þrítugsaldri var flutt á sjúkrahús í Reykjavík aðfararnótt sunnudags eftir alvarlega líkamsárás á nemendagörðum Hólaskóla. Karlmaður sem handtekinn var á staðnum hefur játað verknaðinn og málið telst vera upplýst.
Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki var karlmaðurinn sem framdi verknaðinn gestkomandi á nemendagörðunum og svo virðist sem hann hafi ráðist á konuna eftir gleðskap og barið hana ítrekað í andlitið. Hún hlaut mikla áverka, þar á meðal skurði í andliti, í henni brotnuðu margar tennur og fleira. Konan er ekki frá svæðinu en hún var nemandi í Hólaskóla.
„Sá sem framdi verknaðinn var handtekinn þegar um nóttina og vistaður í fangaklefa. Hann var yfirheyrður á sunnudagsmorgunn og hefur játað verknaðinn,“ segir Stefán Vagn. Hann bætir við að málið hafi verið sjálfkært og þó svo rannsókn standi enn yfir og verið er að hnýta lausa hnúta þá telst málið vera upplýst.