Annað Kormákshlaupið 2015 á morgun

Umf. Kormákur stendur fyrir fjórum götuhlaupum og er hlaupið frá Félagsheimilinu Hvammstanga. Fyrsta hlaupið fór fram sumardaginn fyrsta og fer annað hlaupið fram á morgun, föstudaginn 1. maí kl. 11:00. Næst verða þau: Laugardaginn 9. maí kl. 11:00 og Laugardaginn 16. maí kl.11:00.

Keppt er í sex flokkum karla og kvenna. Á facebook síðu Kormáks kemur fram að keppt verður um þrenn verðlaun í hverjum flokki.

„Til að eiga möguleika á verðlaunum fyrir sæti þurfa keppendur að taka þátt í þremur hlaupum af fjórum og ræður þá tími í þremur hlaupum röð keppenda. Allir þátttakendur fá viðurkenningu fyrir þátttöku,“ segir á síðunni og er verðlaunaafhending að því loknu.

Hlaupavegalengdir

Aldursflokkar karlar og konur

  • Fædd 2008 og síðar 300m
  • Fædd 2005-2007 600m
  • Fædd 2002-2004 800m
  • Fædd 1999-2001 800m
  • Fædd 1989-1998 800m
  • Fædd 1988 og fyrr 800m

Fram kemur að þeir sem hlaupa 800m keppa um bikar sem gefinn var af Göngufélaginu Brynjólfi til minningar um Bjarka Heiðar Haraldsson. Skal keppandi taka þátt í a.m.k. 3 hlaupum af 4, en einstakur tími ræður úrslitum samkvæmt stigatöflu FRÍ.

„Mætið tímanlega til skráningar! Allir með ungir sem aldnir!“ segir loks á síðunni en einnig eru þátttakendur minntir á að koma með gömlu númerin.

Fleiri fréttir