Annar sigur Stólanna í Dominos-deildinni
Tindastóll fékk ÍR í heimsókn í kvöld í Dominos-deildinni. Stólarnir unnu fyrsta leik sinn í deildinni fyrir viku þegar þeir sóttu Njarðvík heim og þeir náðu öðrum sigrinum í röð í kvöld eftir mikinn og jafnan slag gegn Breiðhyltingum. Í hálfleik voru Stólarnir yfir 53-49 en lokatölur urðu 96-90.
Leikurinn fór fjölega af stað en heldur byrjuðu gestirnir betur með Isaac Miles í miklum ham en kappinn hóf leiktíðina í búningi Tindastóls en var látinn taka pokann sinn. Stólarnir náðu góðum kafla eftir að hafa lent undir 5-10, Helgi Rafn gerði þá 6 stig í röð og Arnar og Hreinsi bættu um betur og Stólarnir komnir í 15-12. Liðin skiptust á um að hafa forystu það sem eftir lifði af fjórðungnum en ÍR-ingar yfir 26-27. Svabbi og Þröstur Leó náðu forystunni fyrir Stólana í upphafi annars leikhluta en leikurinn hnífjafn fram að hléi. Eric Palm var fyrnasterkur hjá gestunum og raðaði niður boltum. Staðan í hálfleik 53-49.
Liðin voru ísköld í upphafi þriðja leikhluta og skoruðu ekkert fyrstu tvær mínúturnar. Baráttan var í algleymingi en um miðjan leikhlutann náðu Stólarnir að spýta í lófana, breyttu stöðunni á fjórum mínútum úr 61-60 í 75-65, ekki síst fyrir góðan leik Þrastar Leós. Hreggviður Magnússon var klókur og nældi sér í þrjú vítaskot í þann mund sem leiktíminn rann út í 3ja leikhluta og setti skotin niður og staðan 75-68.
Fjórði leikhluti einkenndist af mikilli spennu og fjölda mistaka hjá báðum liðum. ÍR minnkaði muninn í 79-75 þegar þrjár og hálf mínúta var liðin en 2 stig frá Valentine og 3ja stiga karfa (spjaldið oní) frá Arnar tryggðu Stólunum 9 stiga forystu. Aftur komu gestirnir og Hreggviður negldi niður þrist og staðan 86-80 og fimm mínútur eftir. Valentine gerði þá fjögur stig á skömmum tíma og 10 stiga forysta þegar fjórar mínútur voru eftir og stuðningsmenn Tindastóls vel með á nótunum. Næstu þrjár mínúturnar gerðu Stólarnir ekkert stig en leikmenn ÍR voru litlu skárri, stress og agaleysi voru einkennanndi. ÍR minnkaði muninn í 90-85 þegar rúm mínúta var eftir og náðu að stela boltanum undir körfu Stólanna en náðu ekki að hitta í körfuna þrátt fyrir tvær ágætar tilraunir og á endanum náðu Stólarnir boltanum og ÍR-ingar brutu á Drew Gibson sem setti niður bæði vítin sín, ÍR setti niður þrist og brutu síðan á Helga Frey sem gulltryggði sigurinn. Lokatölur 96-90.
Lið Tindastóls var vel að sigrinum komið en lentu þó í stressi undir lokin. Valentine var stigahæstur með 26 stig og 14 fráköst. Þröstur Leó átti flottan leik og alltaf gaman að fylgjast með honum en kappinn gerði 22 stig og átti 8 stoðsendingar. Helgi Margeirs var líka góður í kvöld, ekki síst í vörninni og þá var Helgi Rafn seigur en hann lenti reyndar fljótlega í villuvandræðum. Góður sigur og gefur Stólunum vonarneista fyrir seinni umferðina en liðið er nú með 4 stig, jafn mörg og KFÍ. Stólarnir eiga þó leik inni gegn Skallagrími sem er í 8.-10. sæti ásamt ÍR og Njarðvík. Það er enn hellingur af stigum í pottinum og allt getur gerst.
Hjá ÍR var Palm stigahæstur með 26 stig en næstur honum kom Hreggviður með 19 stig sem flest komu í síðari hálfleik en kappinn var ískaldur í þeim fyrri. Miles var með 16 stig.
Stig Tindastóls: Valentine 26, Þröstur Leó 22, Helgi Rafn 10, Arnar 10, Helgi Margeirs 8, Drew Gibson 8, Svabbi 6 og Hreinsi 6.