Árlegt skemmtikvöld Starfsbrautar FNV í kvöld
Árlegt skemmtikvöld starfsbrautar FNV verður haldið í kvöld miðvikudagskvöld en á dagskrá er m.a. stuttmyndir unnar af nemendum FNV, kynning á starfsbrautinni ýmis tónlistaratriði á vegum tónlistarhóps FNV auk þess sem Kammerkór FNV flytur nokkur lög á ýmsum tungumálum.
Dagskráin fer fram í sal fjölbrautaskólans og hefst klukkan 20:00 .