Árshátíð Léttfeta um helgina
Félagar í hestamannafélaginu Léttfeta ætla að lyfta sér upp um næstu helgi og halda sína árlegu árshátíð. Að sögn nefndarmanna verða á boðstólnum miklar kræsingar úr smiðju Óla kokks frá Hellulandi og nýstárleg skemmtiatriði sem enginn má missa af. Síðasti skráningardagur í kvöld.
Árshátíðin verður haldin laugardaginn 2. mars í Tjarnarbæ og er skráning hjá Sigfúsi í síma 8953133 og Steinunni Rósu í síma 899 2003 fyrir miðnætti í kvöld, 26. febrúar.
Allir félagsmenn eru hvattir til að dusta rykið af sparifötunum, fægja góða skapið og skrá sig sem fyrst.