Árshátíð unglingastigs Árskóla

Árshátíð unglingastigs Árskóla hefst í dag og verður að venju haldin í Bifröst á Sauðárkróki. Sýningar verða þriðjudaginn 22. janúar og miðvikudaginn 23. janúar klukkan 17:00 og 20:00. Að þessu sinni munu 8. og 9. bekkir stíga á stokk og flytja nokkur leikrit.

Miðapantanir í síma 453-5216 frá klukkan 14:00 til 20:00 báða sýningardagana. Miðaverð er kr. 1200,- fyrir fullorðna, kr. 800,- fyrir grunnskólanemendur og kr. 500,- fyrir börn á leikskólaaldri.

Ekki er tekið við greiðslukortum.

 

Fleiri fréttir