Árskóli undir eitt þak - Sveitarstjórn samþykkir byggingarframkvæmdir

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti að hefja framkvæmdir við viðbyggingu Árskóla á Sauðárkróki á 287. fundi sveitarfélagsins, sem haldinn var í gær. Ástand núverandi skólahúsnæðis að Freyjugötu, þar sem yngra stigið er til húsa, veldur því að nauðsynlegt er að verja talsverðum fjármunum til viðhalds eða byggja viðbyggingu við Árskóla og ákveðið var að ráðast í seinni kostinn.

Samkvæmt fundargerð 287. fundar verður farið í nýbyggingu ofan á búningsaðstöðu íþróttahúss í fyrsta áfanga verksins, en því nemur 960 fm, og viðbyggingu á c-álmu til suðurs sem nemur 450 fm. Nýbyggingar nema því alls 1410 fm. Endurbætur verða einnig gerðar á núverandi c-álmu og snúa þær að lagfæringum á matsal, eldhúsi, bókasafni, kennaraaðstöðu, tónmenntastofu í kjallara, auk uppbyggingar textílaðstöðu í anddyri íþróttahúss. Þær endurbætur sem gerðar verða innanhúss á núverandi húsnæði nema því 1063 fm en alls nema nýbyggingar og endurbætur í fyrsta áfanga verksins 2473 fm.

Í fyrirliggjandi tillögum stendur ekki til að skerða núverandi íþróttasvæði norðan skólahúss „og er með því komið til móts við háværar raddir íbúa sem mótmælt höfðu þeirri fyrirætlan,“ segir í fundargerð 287. fundar.

Áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar er kr. 480.644.423,- án lóðar en áætlað er að lóðafrágangur norðan húss nemi kr. 37.734.000,- Alls er því áætlað að fyrsti áfangi framkvæmda við Árskóla muni kosta kr. 518.378.423,-,“ kemur fram í fundargerð.

Tillagan var samþykkt með sjö atkvæðum gegn tveimur og var hún samþykkt með fyrirvara um fjármögnun. Kaupfélag Skagafirðinga hefur boðist til að lána fjármagn til verksins, án vaxta og afborgana á meðan á byggingartíma stendur. Sveitarstjóra og byggingarnefnd Árskóla hefur verið falið að skoða nánari útfærslu lánsfjármögnunar og úttekt á mögulegum fjármögnunarkostum til lengri tíma.

Árskóli við Freyjugötu barn síns tíma

Húsnæðið við Freyjugötu var byggt árið 1947 og hefur því þjónað hlutverki sínu í 65 ár. Í fundargerð segir að ljóst er að ráðast þurfi í umfangsmiklar endurbætur og viðhald á þessu húsnæði ef það á að uppfylla reglugerð um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða, lög um grunnskóla, uppfylla kröfur um aðgengi fyrir fatlaða og þjóna hlutverki sínu sem skólahúsnæði til næstu ára og áratuga.

Það húsnæði er í brýnni þörf fyrir endurbætur sökum leka, lélegrar torfeinangrunar o.fl. og er ekki boðlegur vinnustaður fyrir börn eða starfsmenn eins og þar háttar í dag. Áætlaður kostnaður við slíkar endurbætur nemur yfir 200 milljónum króna,“ kemur fram í fundargerð.

Sveitarstjórn hefur látið kanna þá fjárhagslegu hagræðingu sem kynni að skapast við sameiningu Árskóla á einn stað. Í því samhengi er helst nefnt fækkun stöðugilda, sparnað í akstri og sparnað í rekstrarkostnaði. Þessi hagræðing er því talin nema að lágmarki 32 milljónum króna á ári hverju og raunkostnaður sveitarfélagsins vegna þeirra þá áætlaður um 5 milljónir króna á ári.

Þá er ótalinn sá kostnaður sem sveitarfélagið þyrfti að ráðast í á eldri mannvirkjum. Jafnframt má geta faglegs ávinnings við að sameina skólastarf undir einu þaki sem og gjörbreytta vinnuaðstöðu nemenda og starfsfólks Árskóla,“ er bætt við.

Ekki allir á sama máli varðandi framkvæmdina

Þorsteinn Tómas Broddason sveitarstjórnarfulltrúi tók til máls á fundinum og fram kemur í bókun hans að hann telur viðbyggingu við Árskóla hvorki vera með velferð barna í fyrirrúmi né innibera hagræðingu fyrir sveitarfélagið. „Kostnaður við rekstur skólans mun aukast við þessa framkvæmd og ekki stendur til að aðlaga skólalóðina að þörfum yngstu nemendanna. Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2011 var mjög slæmur og lítið sem ekkert hefur verið gert til að laga hann á árinu 2012,“ segir í bókuninni.

Sigurjón Þórðarson sveitarstjórnarfulltrúi tók einnig til máls og vildi fresta afgreiðslu málsins og kynna þessa kostnaðarsömu framkvæmdir fyrir íbúum sveitarfélagsins. „Algjört lágmark er að kynna fyrir íbúum teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum þó að það væri ekki gert með öðrum hætti en með því að setja teikningar af viðbyggingu á heimasíðu sveitarfélagsins,“ segir Sigurjón.

 

Fleiri fréttir