Ársreikningur samþykktur í seinni umræðu
Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2012 var lagður fram til seinni umræðu á fundi sveitarstjórnar á dögunum, en hann samanstendur af upplýsingum um A hluta sveitarsjóðs og samantekin A og B hluta. Rekstrarhagnaður A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 428 millj. króna, þar af er rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð fyrir afskriftir og fjármagnsliði um 176 millj. króna.
Rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar námu á árinu 3.548 millj. króna af samstæðunni í heild, A og B hluta. Þar af voru rekstrartekjur A hluta 3.098 millj. króna.
Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 3.120 millj. króna, þ.a. A hluti 2.922 millj. króna.
Afskriftir eru samtals 136 millj. króna, þar af 69 millj. króna hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals um 262 millj. króna, þ.a. eru 180 millj. króna fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs.
Rekstrarhagnaður A og B hluta á árinu 2012 er 16,7 millj. króna en rekstrarniðurstaða A hluta er neikvæð um 79 millj.króna.
-Í frétt sem birtist í vef sveitarfélagsins, skagafjordur.is, þakkar Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri starfsfólki Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir þann góða árangur sem náðst hefur í rekstri sveitarfélagsins og þeim sem komu að vinnu við gerð ársreikningsins.
Töluverðar umræður sköpuðust um ársreikninginn áður en hann var samþykktur í annarri umræðu.
Stefán Vagn Stefánsson lagði fram bókun frá meirihluta sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og fagnaði jákvæðri niðurstöðu ársreiknings 2012 og þeim viðsnúningi sem orðið hefur í rekstri sveitarfélagsins:
„Þetta er í annað sinn sem jákvæð niðurstaða næst í ársreikningi Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá sameiningu þess og eftir að nýjar reikningsskilareglur tóku gildi árið 2002.
Hinn 19. júlí árið 2012 samþykktu allir flokkar í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að koma til framkvæmda þeim tillögum sem lagðar höfðu verið til í kjölfar niðurstöðu rekstrarúttektar á öllum einingum sveitarfélagsins. Afrakstur þeirrar vinnu er nú að líta dagsins ljós og ber að þakka þá samstöðu sveitarstjórnarfulltrúa og starfsfólks sveitarfélagsins sem tóku þátt í að ná þessum árangri.
Fylgja þarf þessum árangri eftir til að enn betra svigrúm verði skapað til uppbyggingar, framkvæmda og betri lífsgæða fyrir íbúa sveitarfélagsins,“ segir í bókun meirihlutans.
Sigurjón Þórðarsons sveitarstjórnarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra tók til máls og lét bóka eftirfarandi:
„Breytingar núverandi meirihluta á afskriftum eigna, hafa veruleg áhrif á niðurstöðu uppgjörs sveitarfélagsins. Ef reikningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2012 hefðu verið gerðir upp með sama hætti og á árinu 2011, þá væri hallinn á rekstri sveitarfélagsins á fjórða tug milljóna króna á árinu 2012. Frá árinu 2010 hafa skuldir Sveitarfélagsins Skagafjarðar aukist um hálfan milljarð á sama tíma og íbúum hefur fækkað um á annað hundra. Aukin skuldsettningin meirihlutans er algerlega óábyrg en hún leiðir ekki til annars þegar fram í sækir en harkalegra hagræðingaaðgerð og niðurskurðar á þjónustu.
Ég get ekki veitt samþykki mitt fyrir ársreikningum vegna þess að meirihlutinn hefur ekki enn upplýst um skiptingu kostnaðar eftir stjórnamálaflokkum á árinu 2012 fyrir: fundi, ferðakostnað innanlands og erlendis,akstursgjöld og dagpeninga.
Framangreind beiðni um upplýsingar hefur legið fyrir frá 13 mars sl. og er furðulegt að ætlast til þess að sveitarstjórnarfulltrúar samþykkti reikninga áður en búið er að gera grein fyrir þeim fyrirspurnum sem liggja fyrir,“ segir í bókun Sigurjóns.
Ásta Björg Pálmdóttir sveitarstjóri, kvaddi sér hljóðs og lét bóka að hún myndi að sjálfsögðu svara öllum þeim fyrirspurnum sem berast og Sigurjóni Þórðarsyni væri fullkunnugt um hvers vegna þetta hafi dregist.
Þorsteinn Tómas Broddason fulltrúi Samfylkingarinnar í sveitarstjórn tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Niðurstaða reksturs á árinu 2012 er því miður ekki eins góð og lagt var upp með við gerð fjárhagsáætlunar. Tap af rekstri A hluta var 34 mkr meira en gert var ráð fyrir þrátt fyrir að tekjur A hlutans hafi verið 130 mkr hærri en gert var ráð fyrir og þrátt fyrir hagræðingarátak á síðasta ársfjórðungi. Skuldir Sveitarfélagsins hafa hækkað um rúmlega 200 milljónir á árinu og gengið hefur verið á handbært fé sveitarfélagsins, þó voru framkvæmdir uppá um 80 milljónir króna sem gert var ráð fyrir í áætluninni settar á ís. Til að rétta af rekstur aðalsjóðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þannig að hann standist kröfu sveitarstjórnarlaga þarf að finna rúmar 139 milljónir króna í aukinni hagræðingu. Það er því brýnt að unnið sé áfram eftir þeim hagræðingartillögum sem sveitarstjórn samþykkti að fara í síðasta haust og kalla ég því eftir því að sveitarstjórn verði kynntar þær aðgerðir sem búið er að fara í, hverju þær hafa skilað hvað er eftir og hvernig þeim sem eftir eru verður komið í framkvæmd.“
Jón Magnússon og Sigríður Svavarsdóttir óskuðu eftir að eftirfarandi yrði bókað:
„Sjálfstæðismenn í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar telja að ársreikningur fyrir árið 2012 sýni að jákvæðar breytingar hafa orðið í rekstri sveitarfélagsins á síðasta ári. Þessar breytingar ber að þakka samstilltu átaki sveitarstjórnar og allra starfsmanna sveitarfélagsins við að halda niðri rekstrarkostnaði sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins. Sjálfstæðismenn telja brýnt að halda áfram á sömu braut, því markmiðið er að rekstur sveitarfélagsins skapi svigrúm til niðurgreiðslu skulda á næstu árum. Leiðin að því markmiði er að markvisst verði unnið að eflingu atvinnulífs að hálfu sveitarstjórnar í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir innan og utan héraðs. Öflugt atvinnulíf og fjölgun starfa er grundvöllur þess að auka megi tekjur sveitarsjóðs og stuðla að jákvæðri íbúaþróun í okkar ágæta sveitarfélagi. Sjálfstæðismenn í sveitastjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar eru reiðubúnir til að leggja sín lóð á vogarskálir til að svo megi verða.“
Loks óskaði Sigurjón Þórðarson eftir þessari bókun:
„Í ljósi loforða sveitarstjóra um að umræddar upplýsingar muni liggja fyrir þá mun ég að sjálfsögðu undirrita ársreikninga Sveitarfélagsins Skagafjarðar.“
Að þessu loknu voru ársreikningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana þess árið 2012 bornir upp til samþykktar. Samþykkt með níu atkvæðum.