Áskell Heiðar verkefnastjóri Flugklasans Air 66N
Áskell Heiðar Ásgeirsson meistaranemi í ferðamálafræðum við Háskólann á Hólum og fyrrverandi sviðsstjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði hefur verið ráðinn verkefnisstjóri Air 66N tímabundið og mun hann sinna verkefnum klasans til 1. júní nk. ásamt Halldóri Óla Kjartanssyni, verkefnisstjóra hjá MN.
Um áramótin lét Ásbjörn Björgvinsson af störfum sem framkvæmdastjóri MN en Arnheiður Jóhannsdóttir sem áður gegndi stöðu verkefnastjóra Flugklasans Air 66N tekur við starfi framkvæmdastjóra MN.
„Nýtt ár og nýjar áskoranir, ég er kominn í vinnu hjá Markaðsskrifstofunni, mun stýra flugklasanum AIR 66N í hlutastarfi, hlakka mikið til að vinna að spennandi verkefnum með góðu fólki. Auk þess mun ég grípa í stundakennslu við HÍ og Háskólann á Hólum en umfram allt er ég þó meistaranemi í ferðamálafræðum á Hólum. Er svo reyndar í einu námskeiði við HÍ líka í Opinberri stjórnsýslu. Svo ætla ég að skipuleggja eina ráðstefnu á Hólum í júní og eina Bræðslu fyrir austan í júlí og örugglega eitthvað fleira skemmtilegt.
Það dugir því ekkert annað er að láta hendur standa fram úr ermum!“ segir Áskell Heiðar á Fésbókinni.