Ástarsögu úr fjöllunum frestað vegna slæmrar veðurspár - uppfært

Möguleikhúsið hefur frestað ferð sinni um Norðurland sem áætluð var þessa vikuna vegna slæmrar veðurspár hér á Norðurlandi. Þar af leiðandi þarf að fresta sýningunni "Ástarsaga úr fjöllunum" sem sýna átti í dag (þriðjudag 30.10) kl: 17:00. „Þetta þykir okkur mjög leiðinlegt en því miður verður ekki hjá þessu komist,“ segir í tilkynningu frá rekstraraðilum Miðgarðs en þar átti sýningin að vera.

Möguleikhúsið hefur nú ákveðið hvenær það muni koma norður og verður það þriðjudaginn 6. nóvember og er miðaverð kr. 1500.


	

Fleiri fréttir