Ástsæll kennari lætur af störfum

Helga Friðbjörnsdóttir, kennari við Varmahlíðarskóla, lætur nú af störfum eftir 36 ára nær óslitið starf við skólann. Við skólaslit s.l. föstudag voru Helgu þökkuð afar góð störf í gegnum sinn feril og gott samstarf.

Kveðjustundin sýndi svo ekki var um villst að Helga hefur verið einkar ástsæl ísem kennari og hún hefur skilað góðum og sterkum einstaklingum út í lífið. Hennar verður saknað af nemendum, samstarfsfólki og foreldrum. Fræðsluskrifstofa Skagafjarðar  tekur á heimasíðu sveitarfélasgins  undir þakkir til Helgu og færir henni góðar kveðjur með óskum um farsæld og gleði í framtíðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir