Atskákmót í Safnahúsinu
Í tilefni af íslenska skákdeginum sem haldinn er hátíðlegur í dag mun Skákfélag Sauðárkróks efna til atskákmóts í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Samkvæmt tilkynningu frá Skákfélaginu verður umhugsunartíminn takmarkaður við 25 mín. pr. mann á skák.
Mótið hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 18:00. Áætlað e að síðustu umferðir mótsins verði tefldar þriðjudagskvöldið 29. janúar frá klukkan 20:00 til 23:00. Skráning er á staðnum.