Átta marka stórveisla á Sauðárkróksvelli
Nýliðarnir í 1. deild, Tindastóll og Höttur Egilsstöðum, mættust á Króknum í dag og var spilað við fínar aðstæður, 15-20 stiga hita og smá sunnangolu. Það voru heimamenn sem unnu öruggan sigur, 6-2, og sýndu í raun frábæran leik í vörn og sókn.
Heimamenn í Tindastóli náðu forystu strax í byrjun þegar Ben J. Everson gerði gott mark eftir skarpa sókn á 8. mínútu. Tindastólsmenn voru alltaf hættulegir, spiluðu boltanum hratt og sköpuðu hvað eftir annað usla í vörn gestanna. Gestirnir voru helst hættulegir í föstum leikatriðum og það var einmitt eftir hornspyrnu sem Stefán Þór Eyjólfsson náði að jafna á 30. mínútu. Stólarnir tóku miðju og unnu hornspyrnu sem þeir spiluðu stutt úr, Atli Arnarson sendi fyrir og Dominic Furness náði að skalla boltann í netið. Staðan 2-1 fyrir Tindastól. Theo Furness, sem var talsvert sprækari en meðal lækur í leiknum, gerði hins vegar tvö mörk fyrir hlé. Hann gerði þriðja mark Stólanna eftir að boltinn hafði unnist á miðjunni, Ingvi Hrannar sendi á Ben sem lét boltann fara og Theo var á auðum sjó og negldi í fjærhornið. Fjórða markið var ekki síðra en þá fékk Theo boltann skammt utan vítateigs Hattar, hann var ekkert að tvínóna við þetta, setti bara í Stenmark-gírinn og fór í svigi framhjá þremur fjórum varnarmönnum gestanna og stakk boltanum í markið. Glæsilegt einstaklingsframtak. Staðan 4-1 í hálfleik.
Þrátt fyrir góða stöðu í hálfleik voru stuðningsmenn Stólanna ekki á þeim buxunum að fagna strax sigri, minnugir leiksins gegn ÍR fyrr í sumar þar sem gestirnir gerðu 4 mörk í síðari hálfleik. Það var því lítil hamingja í stúkunni þegar gestirnir frá Egilsstöðum minnkuðu muninn með slysalegu marki þar sem boltinn hrökk af Stefáni Þór eftir klafs í teignum og rúllaði í fjærhornið án þess að Seb Furness kæmi vörnum við. Fram að markinu höfðu gestirnir verið að spila ágætega, fengu of mikinn frið til að taka boltann niður og spila honum en þeim hafði ekki gengið vel að skapa sér færi. Tindastólsmenn hefðu hins vegar getað verið búnir að bæta við þremur mörkum fyrsta stundarfjórðung síðari hálfleiks; Ingvi Hrannar skallaði í þverslá og Ben og Theo höfðu báðir skotið framhjá í góðum færum. Stólarnir hristu slenið af sér og fóru að pressa leikmenn Hattar. Hvað eftir annað vannst boltinn á hættulegum stöðum og bara spurning hvenær Stólarnir bættu við marki. Ben J. Everson tryggði sigurinn með frábæru marki á 72. mínútu, fékk boltann í teig gestanna og þvældi aðeins með hann áður en hann náði að búa til færi og setti þá tuðruna í bláhornið. Max Touloute, sem kom inn sem varamaður um miðjan síðari hálfleik, gulltryggði síðan sigurinn með marki skömmu fyrir leikslok, komst einn í gegnum vörn Hattar og skoraði af öryggi. Lokatölur 6-2.
Leikurinn í dag var ljómandi skemmtun og þá sérstaklega gladdi leikur Tindastóls augað. Hattarmenn voru harðir í horn að taka en leikmenn beggja liða gáfu ekkert eftir. Stólarnir voru hinsvegar mun hættulegri í öllum sínum aðgerðum, leikmenn gátu spilað boltanum hratt og laglega á milli sín og einnig mátti oft sjá glæsilegt einstaklingsframtak en þar var Theo Furness fremstur í flokki. Á miðjunni var Dýllaraslagur, Dýlludrengir í báðum liðum, og ekki laust við að stoltið væri í fyrirrúmi. Þá áttu varnarmenn Stólanna stórleik allir sem einn; Björn Anton virtist lítið hafa fyrir hlutunum og Edvard var grimmur og stórgóður. Bakverðirnir gáfu fá færi á sér; Loftur Páll og Fannar Örn voru ekki að hleypa neinum framhjá sér frekar en Arnar Skúli þegar hann kom inná.
Þá er það athyglivert að fyrir leikinn í dag hafði lið Hattar aðeins fengið á sig 6 mörk í 8 leikjum en Stólarnir náðu að tvöfalda þessa tölu í dag. Að vísu var aðalmarkvörður gestanna ekki með en markvörður Hattar sem stóð vaktina í dag verður vart sakaður um mörkin sem liðið fékk á sig.
Að 9 umferðum loknum er lið Tindastóls í 5. sæti í deildinni með 11 stig en það er stutt í fallsæti, BÍ/Bolungarvík er í 11. sætinu með 8 stig. Fyrsta deildin er því hnífjöfn og það verður hart barist í allt sumar.