Atvinnulífssýningin á Feykir.is
Áætlað er að á fjórða þúsund gestir hafi sótt sýninguna „Skagafjörður - lífsins gæði og gleði“ sem haldin var á Sauðarkróki um helgina en vel á annað hundrað sýnendur á um 70 sýningarbásum tóku þátt og kynntu vörur sínar og þjónustu. Þá segir á Fésbókarsíðu sýningarinnar að um 60 manns hafi komið að skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá málstofa, með flutningi erinda eða málstofustjórn. Stefán Friðrik mætti með kvikmyndavélina og tók upp stemninguna.
http://www.youtube.com/watch?v=71MoPlan9h0