Atvinnulífssýningin sett í morgun
Sýninngin Skagafjörður – Lífsins gleði og gæði sem fram fer í íþróttahúsinu á Sauðárkróki um helgina var sett við hátíðlega athöfn nú fyrir stundu. Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu hélt ræðu sem og Bjarni Jónsson forseti sveitarstjórnar sem setti sýninguna. Fjöldi sýnenda eru á svæðinu og margt að skoða.
Á sýningunni munu á annað hundrað sýnendur á um 70 básum troðfylla íþróttahúsið og kynna allt það besta sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða í framleiðslu, þjónustu og menningu. Sambærileg sýning var síðast haldin í Skagafirði árið 2010 og sóttu hana þá um 3000 gestir.
Sýningin verður opin frá kl. 10-17 á laugardegi og 10-16 á sunnudegi. Samhliða sýningunni verður fjölbreytt málstofudagskrá báða dagana þar sem fjallað verður um allt frá skapandi greinum, fjölbreytni í ferðaþjónustu, þróun og tækifærum í iðnaði, yfir í sýn ungs fólks á framtíðina í Skagafirði – svo fátt eitt sé nefnt. Um 60 manns koma að málstofudagskrám með erindum, kynningum og/eða málstofustjórn, þannig að ljóst má vera að flestir eiga að geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi.
Sjá nánar um sýninguna HÉR.