Auglýst eftir umsóknum um styrki í Húnasjóð

Húnaþing vestra auglýsir á heimasíðu sinni eftir umsóknum um styrki í Húnasjóð vegna ársins 2021 en umsóknir skulu fram með rafrænum hætti á síðunni og skal skilað inn eigi síðar en 8. júlí nk. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.

Á heimasíðu Húnaþings vestra kemur fram að Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920.

Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn, sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 12. október 2000, skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé skv. fjárhagsáætlun hverju sinni. Árlegu framlagi Húnaþings vestra ásamt hálfum vöxtum höfuðstóls skal úthluta í styrki á ári hverju.

Úthlutunarreglur Húnasjóðs má finna HÉR

Fleiri fréttir