Axel valinn leikmaður ársins í dönsku úrvalsdeildinni
Skagfirðingurinn Axel Kárason hefur verið að leika í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik við mjög góðan orðstýr en hann var kjörinn bosman leikmaður ársins á dögunum af hinum þekkta körfuboltamiðli Eurobasket.com.
Þá er átt við besta erlenda leikmanninn, að frátöldum bandarískum leikmönnum sem jafnan eru mjög áberandi.
Axel leikur nú með Værlöse í Danmörku og samkvæmt Körfunni.is var hann með 11,4 stig að meðaltali í leik og tók 6,8 fráköst. Þá lék hann að jafnaði 32,33 mínútur í hverjum leik liðsins.
Værlöse, lið Axels, hafnaði í 7. sæti í dönsku úrvalsdeildinni en í fyrstu umferð úrslitakeppninnar voru þeir sigraðir af Svendborg Rabbits 3-0.
Það má segja að Axel sé uppalin hjá Tindastóli en hann hóf körfuboltaferilinn hjá liðinu og lék með þeim til fjölda ára. Hann var einnig leikmaður hjá Skallagrími um tíma.