Bændur sviptir bústofni vegna vanrækslu

Bændur á bænum Fjalli í Skagafirði hafa verið sviptir bústofni vegna vanrækslu en fella þurfti nær allan búfénaðinn, rúmlega 200 gripi. Héraðsdýralæknir segir málið einsdæmi, að minnsta kosti enn sem komið er en þrjú önnur sambærileg mál eru í vinnslu í umdæminu, það er norðvesturumdæmi, mál sem gætu farið á sama veg. Rúv greindi frá þessu í kvöldfréttum í gær.

Í frétt Rúv kemur fram að Matvælastofnun hafi borist ábending um miðjan janúar sl. um að skepnur á bænum Fjalli í Skagafirði væru vanfóðraðar. Við nánari skoðun kom í ljós að sauðfé og hross á bænum voru í slæmu ásigkomulagi en þetta var ekki í fyrsta skipti sem gerðar eru athugasemdir við aðbúnað dýra á bænum. Gerð var krafa um úrbætur og bændum veitt ráðrúm til að bæta fóðrun, gefa ormalyf og útvega hey. Því var ekki sinnt.

Þegar ljóst var að bændur á bænum gætu ekki útvegað fóður var farið fram á vörslusviptingu á öllu búfé. Þetta voru um 140 kindur og 90 hross. Vörslusviptingin var gerð í mars en héraðsdýralæknir sagði í samtali við Rúv að féð hafi orðið mjög vanfóðrað og hrossin illa haldin.

Bóndinn fór sjálfur með sauðféð og um 30 hross í sláturhús en 60 hross voru eftir á bænum í vörslu sýslumanns, 40 þeirra var slátrað nú fyrir skemmstu. Þar með var búið að slátra 210 gripum vegna vanrækslunnar. Ábúendur hafa látið af búskap á jörðinni en fengu að halda eftir 20 hrossum sem komið var fyrir annarsstaðar.

 

Fleiri fréttir