Bágborin æfingaaðstaða á Króknum
Fyrstu deildar lið Tindastóls í fótbolta hefur hafið undirbúning sinn fyrir keppnistímabilið 2013 en eins og boltaáhugamenn vita stóð liðið sig mjög vel síðasta sumar þrátt fyrir hrakspá sumra. Leikmannahópurinn nú er tvískiptur og æfir annar hópurinn á höfuðborgarsvæðinu en hinn á Sauðárkróki þar sem aðstæður eru skelfilegar um þessar mundir.
Aðalæfingasvæði liðsins og í raun allra keppnisflokka Tindastóls er lítill gervigrassparkvöllur við Árskóla sem er einungis 15 x 30 mtr. að stærð og sá sá langminnsti í Skagafirði, að sögn Ómars Braga Stefánssonar formanns knattspyrnudeildar Tindastóls. Ómar segir að undanfarið hafi ekki verið hægt að nota völlinn þar sem snjór og klaki hefur þakið hann og því mættu leikmenn m.fl. karla með skóflur á æfingu í gærkvöldi og mokuðu og hreinsuðu snjó af vellinum sem tók dágóða stund.
Enn er mokað og klakastykkjum kastað út af vellinum
Einhverjum kann að finnast að strákarnir hafi bara gott af því að beita skóflunum en höfum það hugfast að verið er að æfa íþrótt þar sem gerð er krafa um árangur, ekki einungis í meistaraflokkum karla og kvenna heldur einnig efstu flokkum yngri deildarinnar.