Banaslys í Skagafirði

Einn lést í alvarlegu umferðarslysi sem varð þegar jeppi ók út af veginum skammt  frá Kotá í Skagafirði í dag en var tilkynnt um slysið klukkan 14:25. Mbl.is greinir frá þessu.

Þrír aðrir voru í bílnum og voru þeir allir fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Allir voru með meðvitund,samkvæmt heimildum Mbl.is, en ekki er vitað um meiðsli þeirra.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er Rannsóknardeild umferðarslysa nú á slysstað, auk fulltrúa frá lögreglunni á Akureyri og Sauðárkróki. Vegurinn er opinn fyrir umferð.

Fleiri fréttir