Bannað að taka að sér fleiri ættleiðingarmál

Nú fer að styttast í að hjónin hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir frá Skagaströnd og Friðrik Kristinsson frá Sauðárkróki haldi heim til Íslands ásamt dætrum sínum, Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Samkvæmt færslu á samskiptavef þeirra á Facebook hefur gengið mjög vel hjá þeim síðastliðna daga. „Nú erum við komin með alla þá pappíra sem við þurfum hér í Kólumbíu sem staðfesta ættleiðinguna. Við fengum vegabréfin fyrir stelpurnar í gær og var alveg dásamleg tilfinning að vera loksins með þau í höndunum,“ segir á síðunni.

Næst á dagskrá hjá fjölskyldunni er að fá vegabréfsáritun fyrir stelpurnar en hana segja þau vera senda frá Íslandi í sænska sendiráðið í Bogota. „Þegar við erum komin með hana límda inn í vegabréfin getum við lagt af stað heim til Íslands,“ segja þau.

„Við fengum þær gleðifréttir að það sé búið að banna dómara nr.9 að taka að sér fleiri ættleiðingarmál,“ segja hjónin. Þau segja að Tribunal hæstiréttur í Medellin og ICBF ættleiðingarstofnunin sé að leggja fram kvörtun vegna framgöngu dómarans í máli þeirra hjóna, sem upphaflega dæmdi þeim ekki í vil og er þekktur fyrir að vera í „stríði“ við ættleiðingarstofnunina.

„Við erum varla að trúa því að þetta sé loksins að taka enda. Við erum svo rosalega glöð, lífið er svo dásamlegt!! Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar og stuðninginn elsku þið öll sem hafið stutt okkur í þessu erfiða ferli. Við erum ykkur mjög þakklát og hefðum við ekki getað gert þetta án ykkar allra !!“ segja hjónin loks á síðunni.

Fleiri fréttir