Bar þremur lömbum um helgina

Um helgina eða þann 17. mars komu í heiminn þrjú lömb í Enni Viðvikursveit, tvær gimbrar og einn hrútur. Þær Laufey Cara og Heiðdís Líf heimsóttu afa og ömmu, Harald Jóhannsson og Eindísi Kristjánsdóttur, í sveitina til að skoða lömbin og voru þær að sjálfsögðu myndaðar með þeim.

Ekki er enn komið að hinum venjulega sauðburðatíma og að sögn heimamanna er ekki vitað hvar ærin átti sinn ástarfund. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af þeim

.

Fleiri fréttir