Baráttusigur BÍ/Bolungarvíkur gegn Tindastólsmönnum í kvöld
Tindastóll og BÍ/Bolungarvík mættust í kvöld á Sauðárkróksvelli en liðin voru á svipuðu róli í 1. deildinni. Lið Tindastóls átti ekki góðan leik í kvöld, gestirnir voru grimmari og sterkari og gerðu heimamönnum erfitt fyrir við spilamennskuna. Lokatölur voru 0-1 og verða það að teljast sanngjörn úrslit.
Það var þoka á Króknum á meðan leik stóð og svolítil norðangola sem hafði svo sem ekki mikil áhrif á leikinn. Heimamenn léku á móti vindi í fyrri hálfleik en framan af var leikurinn frekar bragðdaufur. Þó varð snemma ljóst að gestirnir voru sterkari aðilinn, hvað eftir annað voru þeir á undan heimamönnum í boltann eða náðu að stela honum af tánum á Tindastólsmönnum. Stólarnir fengu þó fyrsta dauðafærið þegar Max Touloute komst í gegn en markvörður BÍB varði vel. Max átti ágæta spretti og átti aðra ágæta tilraun skömmu síðar. Gestirnir gerðu laglegt mark eftir 30 mínútur en þá náði Daniel Osafo-Badu, sem var frábær í leiknum, boltanum á miðjum vallarhelmingi Stólanna og sendi út á hægri kant þaðan sem boltinn var sendur inn á miðjan vítateig Tindastóls. Þar dúkkaði Gunnar Már Elíasson upp óvaldaður og átti góðan skalla að marki sem Sebastian Furness var nálægt því að verja en hann náði aðeins að slá boltann í stöngina og inn. Bæði lið fengu færi fyrir hlé, Steven Beattie átti gott skot að marki BÍB sem markvörðurinn sló yfir og þá komust gestirnir í gegnum vörn Stólanna en skutu framhjá.
Tindastólsliðið var sprækara í síðari hálfleik en þeim fyrri. Leikurinn var jafn en þó fjörugri en í fyrri hálfleik. Stólarnir settu Arnar Sigurðsson og Benjamín Gunnlaugsson inn á fyrir MaxTouloute og nýjan leikmann, Conor John Killen strax í leikhléi. Arnar og Benni áttu ágæta spretti en sem fyrr voru gestirnir grimmari og þeir fengu betri færi til að bæta mörkum við en heimamenn að jafna. Lokatölur sem fyrr segir 0-1 og nú þurfa Tindastólsmenn að fara að finna taktinn aftur.