Baráttusigur Stólanna gegn Fjölni í dag

Tindastólsmenn voru ekki lengi að hrista af sér ógleðina eftir stórt tap gegn Víkingum í vikunni því þeir hirtu öll stigin sem í boði voru á Sauðárkróksvelli í dag þegar lið Fjölnis úr Grafarvoginum kom í heimsókn. Gestirnir hafa verið í toppbaráttu 1. deildar í sumar en frábær barátta og dugnaður heimamanna skóp mikilvægan sigur og örlítið andrými í baráttunni fyrir áframhaldandi sæti í 1. deild.

Það var kalt á Króknum í dag og hressileg norðangola. Tindastóll byrjaði með vindinn í bakið en voru lengi í gang. Vörnin virkaði svolítið styrð en þrátt fyrir nokkrar hornspyrnur og ágætar sóknir náðu Fjölnismenn ekki að skapa sér almennileg færi. Um miðjan hálfleikinn fékk Max Touloute ágætt færi og reyndi að lyfta yfir markvörð Fjölnis en setti boltann yfir markið. Á 29. mínútu voru gestirnir kærulausir í spilinu og Stólarnir unnu boltann á góðum stað, Steven Beattie gerði vel og kom boltanum á Colin Helmrich sem náði að stinga sér inn fyrir vörn Fjölnis og skoraði af öryggi. Eftir þetta dofnaði heldur yfir gestunum og Tindastólsmenn hefðu getað bætt við mörkum. Markvörður gestanna varði með tilþrifum gott skot frá Árna Arnarsyni sem stefndi efst í markhornið en staðan 1-0 fyrir Tindastól í hálfleik.

Það var reiknað með að Fjölnismenn settu í fluggírinn í síðari hálfleik með vindinn í bakið og það stóð heima. Þeim gekk hins vegar ekki of vel að skapa sér virkilega góð færi og heimamenn börðust eins og ljón og gáfu hvergi eftir. Stólarnir voru farnir að vinna sig inn í leikinn þegar jöfnunarmarkið kom en þá tók Viðar Ari Jónsson boltann á brjóstið og lét síðan vaða á markið af um 30 metra færi. Boltinn fór í fallegum boga yfir Sebastian Furness og efst í bláhornið - glæsilegt mark og algjörlega óverjandi. Nú færðist enn meira fjör í leikinn því hvorugt liðið mátti við því að ná aðeins einu stigi út úr leiknum. Stólarnir bættu í og þrátt fyrir að lið Fjölnis væri meira með boltann þá voru það heimamenn sem sköpuðu sér betri færi. Eddi átti skot í sammarann eftir hornspyrnu og Beattie, Colin og Max fengu allir ágæt færi til að koma Stólunum yfir. Það var svo loks á 85. mínútu sem Beattie komst inn fyrir vörn Fjölnis og skilað boltanum laglega í markið og stuðningsmenn Stólanna heldur betur kátir. Fjölnismenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna en virkuðu frekar þreyttir á lokakaflanum og það gekk lítið hjá þeim að senda boltann inn á teig Tindastóls því leikmenn Tindastóls létu ekkert framhjá sér fara. Lokatölur því 2-1 og sigurinn í raun sanngjarn því heimamenn sköpuðu sér betri færi í leiknum.

Hver og einn einasti leikmaður Tindastóls stóð fyrir sínu í leiknum og það tóku allir þátt í að verjast. Það hafa oft verið betri aðstæður til að spila fótbolta í sumar en í dag, en Tindastólsmenn gerðu vel í sínu spili og á Donni þjálfari skilið hrós fyrir leik liðsins í sumar.

Á sama tíma og Stólarnir sigruðu Fjölni þá vann liðið fyrir neðan, Höttur, Víking R. en lið Tindastóls er sem fyrr í níunda sæti, nú með 21 stig, en á leik inni. Sá leikur verður spilaður á þriðjudaginn en þá fara Stólarnir norður á Akureyri og spila við Þór kl. 18:30.

Fleiri fréttir