Baráttusigur Tindastólsstúlkna gegn Stjörnunni
Það var toppslagur í hjá stúlkunum í meistaraflokki Tindastóls í 1. deild kvenna á laugardaginn en þá kom sterkt lið Stjörnunnar í heimsókn í Síkið. Stelpurnar reyndust ólseigar og unnu frækinn baráttusigur á lokametrunum, 71-67.
Á heimasíðu Tindastóls segir að leikurinn hafi verið mikil skemmtun, hnífjafn og bæði lið að spila fínan körfubolta. Um miðjan fjórða leikhluta fékk máttarstólpi Stólanna, Tashawna Higgins spilandi þjálfari, sína fimmtu villu og kom því ekki meira við sögu. Þá stigu ungu stúlkurnar í liðinu upp og kláruðu leikinn með glæsibrag.
Eftir þennan sigur eru Fjölnir, Tindastóll og Stjarnan öll með 16 stig í deildinni í 2.–4. sæti en Breiðablik er á toppnum með 18 stig. Næst eiga stelpurnar leik gegn Laugdælum sem enn hafa ekki unnið sigur í deildinni.