Barokkhátíðin á Hólum mun hefst nú kl. 10, fimmtudaginn 23. júní og stendur fram á sunnudag 26. júní þar sem henni lýkur með tónleikum kl. 14. Á námskeiðinu verður m.a. söngnámskeið undir stjórn Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur og dansnámskeið undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur þar sem kenndir verða dansar frá barokktímabilinu.
Fræðslu og fyrirlestra halda m.a. Þóra Kristjánsdóttir, Hjörleifur Arnar Jónsson, Eyþór Ingi Jónsson og Michael Jón Clarke. Einnig verða í boði hádegistónleikar í umsjón þekktra tónlistamanna.
Námskeiðið er ókeypis en þátttakendur greiða sjálfir fyrir mat og gistingu á Hólum.
Hægt er að skráið þátttöku í netfanginu barokksmidjan@holar.is eða guttikristin@simnet.is .
Aðgangur ókeypis.
Dagskráin er eftirfarandi:
23. júní, fimmtudagur
10.00-12.00 Þátttakendur drífur að úr öllum áttum. Tækifæri til að hittast og skipuleggja starfið næstu daga.
12.00-12.30 Hádegisverður
12.30-13.15 Hádegistónleikar í Hóladómkirkju – umsjón: Daníel Þorsteinsson orgelleikari.
13.30 – 15.00 Dansnámskeið fyrir lengra komna – umsjón: Ingibjörg Björnsdóttir
13.30 – 15.00 Hljóðfæraleikarar hittast til æfinga og skipulags.
15.00-15.30 Síðdegishressing
15.30 – 16.30 Fyrirlestur um talnafræði barokksins – umsjón: Eyþór Ingi Jónsson. Eyþór ræðir um hvernig tónskáldin fléttuðu inn í tónlist sína þeim tölum með trúarlegt tákngildi. Einn mesti meistarinn í þessari íþrótt var Johann Sebastian Bach.
16.30-18.00 Æfingar eftir áhuga og þörfum.
18.30 Kvöldverður
21.00 Gengið upp í Gvendarskál þar sem blásið verður í lúðra og jafnvel leikið á fleiri hljóðfæri. Ef ekki viðrar til göngunnar verður henni frestað þar til seint á föstudagskvöld.
23.00 Kvöldsöngur úr Oden und Lieder eftir Gabriel Voigtländer frá 1642 – Marta G. Halldórsdóttir og Örn Magnússon
24. júní, föstudagur
9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur eða annarra áhugasamra.
9.30-11.00 Söngnámskeið Mörtu Halldórsdóttur hefst. Hljóðfæraleikurum gefst tækifæri til æfinga. Hvort tveggja, söngnámskeið og æfingar, er opið fyrir öllum sem vilja fylgjast með.
9.30-10.45 Dansnámskeið fyrir lengra komna. Ingibjörg Björnsdóttir.
11.00-12.00 Dansnámskeið – opinn tími. Ingibjörg Björnsdóttir.
12.00-12.30 Hádegishressing
12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu – umsjón: Judith Þorbergsson. Kynnt verður blásturshljóðfærið krumhorn og leikið á mismunandi raddir þess.
13.30-14.30 Dansnámskeið fyrir lengra komna – Ingibjörg Björnsdóttir kennir
13.00-15.00 Söngnámskeið Mörtu heldur áfram.
15.00-15.30 Síðdegishressing
15.30-16.30 Erindi með tónlist í umsjón Hjörleifs Arnar Jónssonar. Hjörleifur fjallar um slagverk og slagverksleik á barokktímanum.
16.45-18.00 Söngnámskeið Mörtu heldur áfram. Tími til ýmissa æfinga (hljómsveit, söngvarar)
16.45-18.00 Dansnámskeið – opinn tími. Ingibjörg Björnsdóttir.
18.30 Kvöldverður
20.00 Kvöldvaka undir stjórn Þóru Kristjánsdóttur með fróðleik og listsköpun. Þóra ræðir um íslenska myndlist á fyrri öldum með áherslu á barokktímann 1600-1750. Ingibjörg Björnsdóttir verður líka með fróðleik um dans og tónlistarfólk fléttar tónlist inn í dagskrána.
25. júní, laugardagur
9.00 Morgunleikfimi í umsjón Ingibjargar Björnsdóttur eða annarra áhugasamra
9.30-10.45 Dansnámskeið fyrir lengra komna. Ingibjörg Björnsdóttir kennir
11.00-12.00 Æfingar
11.00-12.00 Dansnámskeið fyrir byrjendur. Ingibjörg Björnsdóttir.
12.00-12.30 Hádegishressing
12.30-13.15 Hádegistónleikar í Auðunarstofu. Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari leika barokktónlist á alþýðuvegu. Vinnuheitið er „Fiðlan og fótstigið“ en líka mætti kalla það „Purcell í peysufötum“, „Lully í lopapeysu“ eða „Händel með hangikjöti“.
13.30-14.30 Dansnámskeið – opinn tími. Ingibjörg Björnsdóttir.
14.30-15.30 Hljómsveit æfir
15.00-15.30 Síðdegishressing
15.30-16.45 Hljómsveit æfir með dönsurum.
17.00-17.45 Fyrirlestur um sögu klassísks söngs frá geldingum til nútímans – umsjón: Michael Jón Clarke. Michael ræðir um tónlistarsöguna og þátt geldinganna í þróun söngtækninnar.
18.30 Barokkkvöldverður í sal Hólaskóla. Óskað er eftir að þátttakendur á hátíðinni troði upp með ýmis atriði, gamanmál, tónlist, leiklist, ræður eða annað skemmtilegt. Loks verður slegið upp barokkballi með undirleik hljómsveitar hátíðarinnar. Muna að skrá sig hjá kokkinum!
26. júní, sunnudagur
11.00 Barokkmessa í Hóladómkirkju
12.30 Hádegishressing.
14.00 Lokatónleikar Barokkhátíðar 2011. Efnisskráin er blanda af fyrir fram æfðu efni og afrakstri hátíðarinnnar.