Eyrarvegur lokaður miðvikudaginn 4. nóvember
Vefur Skagafjarðar vekur athygli á því að lokað verður fyrir umferð á Eyrarvegi á Sauðárkróki miðvikudaginn 4. nóvember vegna framkvæmda. Lokunin tekur gildi kl. 8:00 og stendur fram eftir degi.
Á meðan á framkvæmdum stendur verður umferð beint um hjáleið og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
