Barokksmiðja Hólastiftis og Hólanefnd fá styrki úr tónlistarsjóði
Menntamálaráðuneytið hefur að tillögu tónlistarráðs úthlutað styrkjum úr tónlistarsjóði fyrir fyrri helming þessa árs. Barokkhátíðin á Hólum 2013 og Sumartónleikar í Hóladómkirkju 2013 voru á meðal þeirra 57 verkefna sem fá úthlutaðan styrk að þessu sinni.
Barokkhátíðin fær úthlutaðar 400 þúsund krónur og Sumartónleikar í Hóladómkirkju 300 þúsund krónur.
Tónlistarsjóði bárust 104 umsóknir en sótt var um samtals 71 milljón króna. Heildarráðstöfunarfé tónlistarsjóðs á þessu ári er 81 milljón króna. Að þessu sinni verða veittir styrkir til 57 verkefna og eins samnings að heildarfjárhæð 24.010.000 kr. En að auki skuldbinding til fyrri samninga að upphæð 19,5 milljónir króna. Alls er því úthlutað nú úr tónlistarsjóði 46.510.000 kr., samkvæmt fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.
Auglýst verður eftir umsóknum fyrir verkefni á síðari hluta ársins í apríl nk.