Benedikt einn í sjósundinu

Þegar til kom var aðeins einn sem treysti sér í þrettándasund í höfninni á Sauðárkróki í gær en þar var á ferðinni sjósundsgarpurinn Benedikt Lafleur. Synti hann í þriggja gráðu heitum sjónum í u.þ.b. 10 mínútur og lét sér ekki muna um að fara aftur útí til að tékka á hitastiginu betur en hitamælirinn í úrinu hans virkaði ekki í fyrri sundsprettinum.

Fólk kom á staðinn og nokkrir sem voru að spá í að dýfa sér í sjóinn en komu sér ekki yfir óþægindaþröskuldinn enda engin sturta eða heitur pottur á staðnum og kannski of langt í sundlaugina.

Benedikt bar sig vel eftir sundið enda vanur að synda í sjónum hvernig sem viðrar. Hér fyrir neðan má sjá myndbrot að sundinu og viðtal við kappann.

https://www.youtube.com/watch?v=q-ncYSdPUbk

 

Fleiri fréttir