Benedikt með nýtt sund
Benedikt Lafleur sundkappi hefur ákveðið að synda nýtt sund sem hann nefnir Hegranessund. Þá syndir hann frá Hegranesvita í Skagafirði inn í Sauðárkrókshöfn. Áætluð brottför er núna kl 12.00 að hádegi og stefnt á að koma upp úr sjónum milli kl 14 og 14:30.
Vegalengd sundsins er 5,2-5,5 km og gerir Benedikt ráð fyrir því að fyrsti kaflinn verði erfiðastur en hann er til móts við ósa Vestur-Héraðsvatna.