Biðlistum eytt í Árvist
Upplýst var á fundi fræðslunefndar Svf. Skagafjarðar fyrir skömmu að hægt verður að taka inn öll börn um áramót sem eru á biðlista í Árvist. Þetta er gert með breytingum á skipulagi og nýtingu skólahúsnæðisins.
-Áformað er að leysa biðlistann með því að nýta skólahúsnæðið við Freyjugötu betur. Ekki er ætlunin að þetta feli í sér fjölgun starfsmanna, heldur munum við skipuleggja starfið með öðrum hætti og reyna þannig að koma til móts við þá foreldra og börn sem nýta Árvistina, segir Herdís Sæmundardóttir fræðslufulltrúi sveitarfélagsins.