Bikarinn heim
Í gærkvöldi komu Lengjubikarmeistararnir heim með feng sinn úr Stykkishólmi þegar úrslitin réðust í Lengjubikarkeppninni. Blásið var til móttökuhátíðar á Mælifelli og mættu stuðningsmenn á staðinn og klöppuðu leikmönnum lof í lófa er þeir komu í salinn.
Innkoma liðsins inn í bæinn var böðuð bláum ljósum því lögreglan beið eftir meisturum við Skarð og ók á undan með blá blikkandi ljós og fór þannig í fararbroddi gegnum bæinn, einn heiðurshring áður en liðinu var hleypt út við Mælifell.
.