Bíll varð eldi að bráð á Siglufjarðarvegi
Ruv.is segir af því að lögregla og slökkvilið á Sauðárkróki var kallað út um klukkan átta í kvöld en kviknað hafði í bíl á Siglufjarðarvegi. Bíllinn er gjörónýtur eftir brunann.
Bíllinn hafði drepið á sér í akstri og fór ekki í gang aftur. Ökumaður og farþegi urðu skömmu síðar vör við reyk og forðuðu sér út úr bílnum. Innan skamms gaus upp eldur sem ökumaður reyndi að slökkva með slökkvitæki en ekki varð við neitt ráðið og brann allt í bílnum sem brunnið gat.
Segir í fréttinni að fólkið hafi orðið nokkuð skelkað en að öðru leiti amaði ekkert að þeim þegar lögregla og slökkvilið kom á staðinn.