Bítlar á Mælifelli um helgina

Næstkomandi laugardagskvöld verða haldnir Bítlatónleikar á skemmtistaðnum Mælifelli á Sauðárkróki þar sem á dagskrá verður breið flóra úr lagasafni The Beatles í bland við fróðleiksmola og almenna gleði.

Bandið skipa Norðfirðingarnir Jón Hilmar Kárason, Marías B. Kristjánsson, Þorlákur Ægir Ágústsson og Hlynur Ben. og segjast þeir hlakka til að flytja lög þessarar stórmerku hljómsveitar fyrir norðlendinga eftir mjög svo vel heppnuð Bítlakvöld í Neskaupstað og í Reykjavík.

Fleiri fréttir