Bjarni Har fékk gullúr frá Olís

Fyrir skömmu var hinn landsfrægi kaupmaður á Sauðárkróki Bjarni Har heiðraður fyrir 40 ára starf í þágu Olís. Var honum afhent gullmerki Olís og gullúr við það tækifæri í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík.

Bjarni tók við verslunarrekstri af föður sínum árið 1970 sem enn ber nafn hans, Verslun Haraldar Júlíussonar.Verslunin sem stofnuð var árið 1919 tók að sér umboð BP, síðar Olís, árið 1930 sama ár og Bjarni fæddist.

-Þeir hafa komið vel fram við mig, ég er bara ánægður. Það var árshátíð um kvöldið og ég fór í djammið hjá þeim, blessuðum sagði Bjarni ánægður eftir athöfnina. –Þetta hefur alltaf verið jafn gaman í gegnum tíðina og ekki síður gaman að grípa í eina og eina ferð á vörubíl suður. Bíladellan hefur lengi verið í mér og lítið lát á henni. Bjarni segist hafa lent í vitlausu veðri á leiðinni suður en segir að nú sé miklu betra að keyra en í gamla daga þegar engar stikur voru á veginum með endurskinsmerki. -En þetta fór allt vel, segir kaupmaðurinn sem lætur engan bilbug á sér finna og heldur enn úti verslunarrekstri í útbæ Sauðárkróks.

Fleiri fréttir