Bjórhátíð um helgina
Um helgina verður haldin Bjórhátíð á Hólum í Hjaltadal og er nú haldin annað árið í röð. Allir framleiðendur bjórs á Íslandi munu mæta til leiks og kynna sína bestu bjóra og nýjustu. „Miklar birgðir koma heim að Hólum í dag og mun Bjórsetrið vera fullt af nýjungum bæði föstudags- og laugardagskvöld,“ segir á facebook-síðu Bjórsetursins.
Á Bjórsetrinu verður All Other Pale frá Mikkeller á krana og svo að sjálfsögðu Hólabjórinn Vesturfara, samkvæmt facebook-síðunni. „Aldrei að vita hvort eitthvað meira spennandi komist á krana um helgina. Svo ætlum við að vera tillitssamir og kaupa nokkra kassa af skolvörn fyrir bjórþreytta menn,“ segir á síðunni.
Bjórhátíðinni er ætlað að stuðla að bættri bjórmenningu landsmanna en einungis er hægt að kaupa miða á Bjórhátíðina á Miði.is og á Facebook-síðu Bjórsetursins er fólk hvatt til að tryggja sér miða sem fyrst og hafa samband við Ferðaþjónustuna á Hólum í vilji það panta gistingu yfir helgina.
Bjórsetur Íslands verður svo opið frá kl. 20:30 – 2:00 bæði föstudags- og laugardagskvöld og er 20 ára aldurstakmark.