Bleikur dagur!
Í dag er bleiki dagurinn, dagurinn þar sem konur, karlar, hundar og önnur gæludýr taka höndum saman og klæðast bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá konum! Fröken Fabjúlöss hefur sjaldan grátið það að þurfa að klæðast bleiku nema síður sé og ekki er nú verra að málefnið sé gott!!!
Krabbameinsfélagið tekur október ár hvert frá í árverknis og fjáröflunarátak gegn krabbameini hjá konum og stendur sala þeirra á Bleiku Slaufunni sem hæst um þessar mundir. Hægt er að fara inn á vefverslun Krabbameinsfélagsins og fjárfesta í slaufu eða kaupa hana á pósthúsum og víðar. Einnig biðja þær hjá Krabbameinsfélaginu ástkæra Íslendinga um að taka virkann þátt í bleika deginum með því tildæmis að taka myndir af bleikklæddum samstarfsmönnum og senda á laila@krabb.is sem þær dæla svo áfram inn á krabb.is og http://www.facebook.com/bleikaslaufan
Við hérna í tískuhorni Fab erum bleikar í dag ásamt samstarfsfélögum, fjölskyldu og vinum... Ert þú bleik/ur?
