Bragaþing á Húsavík

Landsmót hagyrðinga verður haldið á Fosshótel Húsavík laugardaginn 25. ágúst. Landsmótið hefst með borðhaldi kl. 20:00. Veislustjóri verður Jóhannes Geir Einarsson og heiðursgestur Þorfinnur Jónsson á Ingveldarstöðum. Landsmótið er öllum opið og allir velkomnir!

Samkvæmt auglýsingu verða skemmtiatriði m.a. ræða heiðursgests, Kveðandi; vísnafélag Þingeyinga, Kvæðamenn kveða, vísur mótsgesta. Sérleg yrkisefni verða: Hvalir og túrhestar og Náttfari. Harmonikuball verður að loknu borðhaldi.

Aðgangseyrir er kr. 6.800 og þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi þriðjudaginn 21. ágúst hjá Stefáni Vilhjálmssyni, sími 462 2468 (heima) og 898 4475 og Ósk Þorkelsdóttur, sími 464 1527 (heima) og 891 8460, netfang: guinness@vortex.is.

 

Fleiri fréttir