Brenna og flugeldasýning á Hofsósi
Brennan og flugeldasýningin sem átti að fara fram á Móhól á Hofsósi á gamlaárskvöld verður haldin nk. laugardag, þann 5. janúar. Samkvæmt upplýsingum frá Björgunarsveitinni Gretti hefst brennan klukkan 20:30 og flugeldasýningin 21:00.
Flugeldasala Grettis verður svo opin föstudaginn 4. janúar frá 17:00 – 21:00 og á laugardaginn 5. janúar frá 12:00 – 16:00. Þá er um að gera að styrkja björgunarsveitina í sínu heimahéraði.