Breyttur afgreiðslutími sundlaugarinnar í Varmahlíð
Inn á borð félags- og tómstundanefndar Skagafjarðar kom beiðni frá forstöðumanni meðferðarheimilisins Háholts þar sem óskað er eftir því að nemendur og starfsfólk fái aðgang að sundlauginni í Varmahlíð eftir lokun hennar til kl. 20.45, mánudaga til fimmtudaga. Samkvæmt afgreiðslu nefndarinnar verður komið til móts við þetta með breyttum afgreiðslutíma þannig að laugin verður opin til kl. 21.00 miðvikudags- og fimmtudagskvöld.
Frístundastjóri kynnti á fundinum að með tilfærslu á vöktum væri hægt að hafa opið til kl. 21.00 á fimmtudögum í Sundlaugunum á Sauðárkróki og Varmahlíð án þess að til komi aukinn kostnaður. Nefndin samþykkti að breyta afgreiðslutíma Íþróttahússins í Varmahlíð þannig að það lokar kl. 20.00 á miðvikudögum en þess í stað verður laugin opin til kl. 21.00.