Bríet Lilja kölluð í U-15 ára landsliðið

Bríet Lilja Sigurðardóttir hefur verið kölluð inn í U-15 landsliðið í körfuknattleik kvenna en liðið mun taka þátt í Copenhagen Invitational mótinu í sumar.

Finnur Jónsson, landsliðsþjálfari U-15 stúlkna, kallaði Bríeti Lilju inn vegna meiðsla í 12 manna hópnum en fyrir í honum er Linda Þórdís Róbertsdóttir, sem var Íþróttagarpur Feykis í síðustu viku.

Tindastóll á því tvo leikmenn í U-15 ára landsliði stúlkna en landsliðsstúlkurnar eru því þrjár í heildina í yngri landsliðunum, en Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir var valin í U-16 ára liðið.

Heimild: Tindastóll.is

Fleiri fréttir