Brother Grass á Kaffi Krók

Bluegrass hljómsveitin Brother Grass hefur verið á tónleikaferð um landið til að kynna nýju plötuna sína sem nefnist Brother Grass. Þann 25.júlí tróðu þau upp á Kaffi Krók fyrir stútfullu húsi og var Feykir sjálfsögðu á staðnum.

Hljómsveitin inniheldur fimm meðlimi; gítarleikarann Örn Eldjárn sem er eini fulltrúi karlmanna innan sveitarinnar og svo söngkonurnar Ösp Eldjárn, Hildur, Soffía og Sandra. Söngkonurnar eru stórkostlegar allar sem ein, mjög ólíkar raddir en "harmónera" ofsalega fallega saman. Það er gaman að segja frá því að Sandra er Sauðkrækingur og virtist vera afar stolt af því að fá að syngja fyrir íbúa heimabæjarins, þó svo að hún hafi orðað það í byrjun tónleika að þetta væri afar stressandi fyrir hana. Ekki var þó að heyra á henni að hún væri stressuð þar sem hún gaf þeim stallsystrum sínum ekkert eftir í söngnum og hún stóð sig með prýði og sóma, eins og þau öll!

Tónleikarnir voru á allann hátt mjög vel heppnaðir, Kaffi Krókur troðinn út úr dyrum og allir gestir með bros á vör. Húmor, afslappandi stemmning og innlifun einkennir útgeislun Brother Grass meðlima, og það er augljóst að þau elska það sem þau eru að gera! Undir fallega harmónerandi röddum stúlknanna spilaði Örn á Gítar, en oft sáu stúlkurnar einnig um undirspil og þá á járnþvottabala, harmoníku, gamaldags þvottabretti og svokallaðann víbraslappa svo eitthvað sé nefnt. Undirspil af þessu tagi upplifa tónleikagestir nútímans ekki á hverjum degi og er eitt af sjarma þessarar frábæru hljómsveitar!

Feykir mælir svo sannarlega með Brother Grass, og erum við hérna á Feyki stolt af því að Sauðárkrókur eigi fulltrúa í þessari hljómsveit!

Myndir eru birtar með góðfúslegu leyfi Hjalta Árnasonar


 

Fleiri fréttir