Búið að opna Hlíðarendavöll

Sl. fimmtudag var Hlíðarendavöllur opnaður inn á sumarflatir. Á heimasíðu Golfklúbbs Sauðárkróks segir að óhætt sé að spila völlinn þrátt fyrir ýmsar skemmdir á flötum og á brautum. Þrátt fyrir allt er völlurinn í þokkalegu standi.

Á síðunni segir að búið sé að sá í og sanda flatir og eru kylfingar sérstaklega beðnir um að ganga vel um, lagfæra kylfu- og boltaför. Bleyta er á sumum brautum og eru kylfingar jafnframt beðnir um að velja heppilega gönguleið framhjá bleytunni.

Fleiri fréttir