Búningapöntun yngri flokkanna stendur yfir
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
10.10.2012
kl. 11.01
Nú er að fara af stað búningapöntun fyrir yngri flokka Tindastóls í körfunni og eru foreldrar beðnir á heimasíðu félagsins að senda inn pantanir sem allra fyrst, eða fyrir 20. október.
Unglingaráð niðurgreiðir búningana eins og áður í samstarfi við Sparisjóð Skagafjarðar, eða um 2.300 krónur, en hlutur iðkenda að þessu sinni er kr. 5.500 krónur og má leggja það inn á reikning unglingaráðs.
Pöntunarblað ásamt frekari upplýsingum má finna á Tindastóll.is
