Augabrúnatískan á 4 min
Ótrúlega skemmtilegt myndband af því hvernig augabrúnatískan hefur breyst í gegnum áratugina.
En hvaða tíska finnst þér ljótust?
Fleiri fréttir
-
æææææjjjiiiiii og allir komnir á sumardekkin er það ekki....
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 09.05.2025 kl. 12.08 siggag@nyprent.isVeðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á Norðurlandi vestra í dag vegna élja, einkum á fjallvegum. Í dag verður suðvestanátt 8-15 m/s og slydda eða snjóél, t.d. á Holtavörðuheiði. Lítið skyggni getur verið í éljum og krapi og hálkublettir geta myndast á vegum. Því er æskilegt að bílar séu búnir til vetraraksturs. Viðvörunin gildir til miðnættis.Meira -
Umhverfisverðlaun Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur ákveðið að efna til umhverfisverðlauna í sveitarfélaginu. Þá verða þrenn verðlaun veitt og er fólk hvatt til þess að taka höndum saman og gera fallega bæinn enn fallegri.Meira -
Truflanir á afhendingu á hitaveituvatni á Sauðárkróki og Skarðshreppi
Í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum segir að vegna endurbóta á virkjunarsvæði í Borgarmýrum verður truflun á afhendingu hitaveituvatns frá kl. 16:00, mánudaginn 12. maí og fram eftir nóttu. Búast má við að efri hluti Túnahverfis og Hlíðarhverfis verði vatnslaus á meðan unnið er, en reynt verður að hafa rennsli á neðri bænum. Vinsamlegast munið eftir að loka fyrir krana á töppunarstöðum og huga að dælum fyrir upphitun í gólfhita- og bílaplönum.Meira -
Met þátttaka á Umhverfisdegi Fisk Seafood
Umhverfisdagur FISK Seafood var haldinn laugardaginn 3. maí síðastliðinn í frábæru veðri. Markmið þessa dags er að sameinast í útiveru með fjölskyldu og vinum með það að markmiði að fegra nærumhverfið og í leiðinni að styðja við það frábæra íþróttastarf sem fer fram í Skagafirði. FISK hét því að greiða fyrir hvern þátttakanda 12.000 kr. sem myndu renna til þess skagfirska íþróttafélags/deildar sem þátttakandi óskaði eftir. Í tilkynningu sem kom frá Fisk Seafood segir að enn eitt metið hafi verið slegið í ár þ.e. að alls mættu 927 einstaklingar fyrir 16 aðildafélög og/eða deildir innan UMSS í Skagafirði til að plokka og í heildina var 21.4 tonn af rusli tínt upp þennan daginn.Meira -
Blóðbankabíllinn verður á Króknum nk. þriðjudag
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 09.05.2025 kl. 08.41 siggag@nyprent.isNú er Blóðbankabíllinn á ferðinni og ætlar að stoppa á Króknum þriðjudaginn 13. maí milli kl. 11-17 í þeim tilgangi að safna blóði. Ávallt skortir blóð fyrir sjúklinga og slasaða og á Facebooksíðu Blóðbankans kemur fram að skortur sé á blóði í öllum blóðflokkum þá sérstaklega O+, O-, A+ og A-. Því er mikilvægt að sem flestir gefi blóð. Blóðbankinn, sem þarf 70 blóðgjafa á dag, vonast til að sjá sem flesta og eru allir velkomnir, jafnt nýir sem vanir blóðgjafar. Bíllinn verður staðsettur við Skagfirðingabúð á Sauðárkróki.Meira