Ert þú tilbúin/n í þessa skótísku?
Já helstu tískuhönnuðirnir geta stundum farið vel fram úr sér þegar þeir eru að setja upp sýningar og þetta er kannski gott dæmi það!
Eins og þið sjáið þá eru kúrekaskór að koma aftur í tísku en hver er tilbúinn í að prófa að ganga á þessum?
Þetta getur ekki verið þægilegt er það!
kveðja
Siggasiggasigga
Fleiri fréttir
-
Spennandi tímar framundan hjá Valdísi
Það hefur mögulega ekki farið framhjá þeim sem sitja langdvölum með símann í höndunum og skrolla sér til skemmtunar í gegnum Spotify og Instagram að VALDÍS er að gefa út ný lög. Valdís er 26 ára gömul söngkona frá Sauðárkróki, dóttir Önnu Sigríðar Stefánsdóttur og Valbjörns Geirmundssonar, og hefur verið á kafi í tónlist frá unga aldri. Fyrir utan tónlistina þá á hún og rekur Snyrtistofu Valdísar sem er staðsett í Villunni á Hólaveginum á Króknum.Meira -
Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… | Sigríður Framdalz Ólafsdóttir skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 25.10.2026 kl. 10.52 oli@feykir.is… varð mér á orði í gær eftir að hafa fyllt bílinn minn af eldsneyti. Eldsneyti sem er á innan við ári komið upp í sama verð og það var á þegar eldsneytisgjöld voru inni í verðinu. Núna borga ég sem sagt sama verð og áður, þökk sé meðal annars hækkun kolefnisgjalds, og svo greiði ég áætlað kílómetragjald einu sinni í mánuði til viðbótar.Meira -
Raggi í syngjandi sveiflu gegn Sindra
Tindastólsmenn héldu í suðaustur frá Skagafirði í gær en liðið mætti nýliðum Sindra á Höfn í fyrsta sinn í efstu deild körfunnar í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Hornfirðingar eiga lið í efstu deild og þeir sýndu að þeir geta vel bitið frá sér því Stólarnir lentu í basli. Heimamenn leiddu með einu stigi fyrir lokafjórðunginn en Stólarnir voru grimmir á lokakaflanum, skelltu í lás í vörn og fráköstuðu af miklum móð og unnu leikinn 71-78.Meira -
Tengill styrkir stöðu sína á Eyjafjarðarsvæðinu
Tengill hefur keypt Ljósgjafann á Akureyri. Frá þessu segir á Akureyri.net en þar staðfestir Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri Tengils kaupin en tekur fram að viðskiptin hafi verið send til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu, sem þarf að staðfesta kaupin. Á heimasíðu Ljósgjafana segir að Ljósgjafinn ehf. búi yfir áratuga reynslu í öllu því sem snýr að rafmagni og raftæknibúnaði og þjónusti bæði fyrirtæki og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu af metnaði og alúð.Meira -
Ég myndi keppa við Indriða afa í spretthlaupi
Íþróttagarpur í síðasta tölublaði Feykis var Herdís Erla Elvarsdóttir sem verður 14 ára 29. desember n.k. og er búsett á Hvammstanga. Hestamennskugen standa að Herdísi í báðar ættir en foreldrar hennar eru Fanney Dögg Indriðadóttir frá Grafarkoti í vestur Hún. og Elvar Logi Friðriksson frá Varmalæk í Skagafirði. Herdís Erla hefur því alist upp með hestum og er núna farin að láta að sér kveða á keppnisvellinum.Meira
